Sunna Þrastardóttir

Vorið 2013 náði ég mér í meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku. Ritgerðin mín var um mun á tónlistarumfjöllun dagblaðanna og verklegi hlutinn var stutt heimildarmynd um dauðarokk á Íslandi. Ég bjó í Amsterdam í 4 ár, frá 2007-2011 þar sem ég tók fyrst diplomu í hljóðblöndun því draumurinn var að vera hljóðmaður á tónleikum. Eitthvað missti ég áhugann á því og tók þá BA í recording arts, þar sem var stiklað á stóru um ýmis mál sem tengjast tónlistarbransanum. BA ritgerðin mín fjallaði svo um það hvernig kreppan hafði haft áhrif á íslenska tónlistarbransann. Draumurinn er að geta unnið einhvernveginn með tónlist í fjölmiðlum, hvort sem um er að ræða sjónvarp, útvarp eða dagblöð. Ég er frekar gömul sál hvað tónlist varðar og hlusta mikið á 60's og 70's rokk og ról þó að það búi líka smá grunge-ari í mér. Annars er ég mikil alæta svo lengi sem það er ekki of mikið af elektroník. Af öðrum áhugamálum eru það aðalega íþróttir (sérstaklega blak) söngur og gítarspil.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Sunna Þrastardóttir

Höfundur

Sunna Þrastardóttir
Sunna Þrastardóttir

Tónlistaráhugamaður með MA í blaða- og fréttamennsku, BA í recording arts og diplomu í hljóðblöndun frá SAE í Amsterdam. Ég mun einungis skrifa um tónlist á þessari síðu.

Færsluflokkar

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband